2.4.2008 | 20:24
Lífið á Costa Ballena
Vakinn í morgunnmat en hef ekki mikla matarlyst. Pabbi átti rástíma kl. rúmlega 8 í morgunn svo hann var farinn í golf þegar við vöknum. Fyrsta golfið hans eftir rifbeinsbrotið og honum gekk bara bærilega. Var soldið stirður fyrri hringinn en síðan gerði þetta honum bara gott að vinda svona upp á líkamann. Komnar 3 vikur í dag síðan hann datt í hálkunni og rifbeinsbrotnaði. Hjörtur Björn fór á kostum eins og vant er í matsalnum henti í golfið og borðaði upp úr smjörinu og marmilaðinu og enn og aftur var borðið okkar útatað i í öllu því sem þau mamma höfðu smakkað. Við förum svo í göngutúr niður á strönd sem er hér rétt hjá. Ólíkt því sem var á Costa del Sol þá voru fáir á ströndinni og engar búðir eða veitingastaðir enda erum við upp í sveit. Gengum með kerruna berfætt á ströndinni og ég fleytti kellingar, orðinn ansi lúnkinn í því. Veðrið mjög gott hlýtt og svolítil gjóla. Brakandi þurrkur eins og það heitir á sveitamáli sagði mamma. Á leiðinni heim sá ég þá ógeðslegustu pöddu sem ég hef á ævi minni séð og reyndar voru þær nokkrar svartar og feitar þarna á göngustígnum. Tók mynd af henni sem ég set inn.
Þegar pabbi kemur úr golfinu förum við í bíltúr í bæ hér rétt hjá sem kallast Roda.
Ku vera einn elsti bærinn á Spáni og einhvers staðar héðan er Sherry vínið upprunnið. Fáum okkur pizzu á pizzastað. Mjög rólegt í þessum bæ og sennilega allir að leggja sig í sinni síestu.
Góð pizza en samt hef ég bara mjög litla matarlyst og næ ekki að klára eina sneið.
Ís á eftir þannig að allir eru í góðum málum. Keyrum líka hér um hverfið og skoðum golfvöllinn. Mjög mörg hótel hér nálægt hvert öðru. Matur í kvöld og Hjörtur Björn eignast nýjan vin, er orðinn hundleiður á okkur. Eldri maður sem tekur hann upp og labbar um með hann. Hann mjög sáttur með það að fá loks athygli í þessum matsal. Matarlystin að koma hjá mér fæ mér steik í kvöldmat. Spennandi hjá okkur pabba í kvöld þar sem að Arsenal og Liverpool eru að keppa í meistaradeildinni. Við fóurm í veðmál. Ef Liverpool vinnur sem ég trúi þá fæ ég 5 evrur. Ef Arsenal vinnur þá fær mamma 5 evrur. Ef það er jafntefli þurfum við mamma að borga pabba sitthvora evruna en hann býst við jafntefli. Út af leiknum borðuðum við snemma til að ná bestu sætunum á barnum hér niðri og náum bestu sætinum í salnum. Ég er að sjálfsögðu í Liverpool happabolnum mínum og barþjóninum finnst það ætti að standa Torres á bakinu á bolnum. Mamma fer upp með Hjört Björn sem er búinn á því eftir lítinn svefn í dag en hann sofnar síðan fljótt svo mamma getur haft kósy.
Þá er leikurinn búinn hann fór 1:1 eins og pabbi hafði giskað á. Við mamma skuldum honum því samtals 2 evrur og allir eru sáttir. Margir að horfa á leikinn hérna, mikil stemming og flestir héldu með Liverpool.Liverpool jafnaði á 26. mínútu. Steven Gerrard braust inní vítateiginn vinstra megin og sendi boltann inná markteig þar sem Dirk Kuyt renndi sér á boltann og skoraði, 1:1. Liverpool og Arsenal keppa svo aftur á laugardaginn svo þetta er bara að byrja.
Þriðjudagur 1. april
Kominn 1. april og ég gerði ekkert aprilgabb. Lífið er í miklum rólegheitum hér á Hotel Elba á Costa Ballena. Ég er vakinn í morgunnmatinn sem er til kl 10 þannig að maður sefur ekkert út hérna ;) Mjög margt í boði í morgunnmat en samt hafði ég enga lyst.
Hér er mjög flott leikherbergi fyrir krakka Mini Club en það er því miður læst og verður ekki opnað var sagt í lobbýinu. Vonandi fáum við lykil af því síðar. Erum bara í rólegheitum inn á herbergi og í sólinni á svölunum. Í kringum hádegi kemur 100 manna hópur af félögum úr Golfklúbbnum Oddi sem verður hér í golfi í viku. Ég fer með pabba á fundinn sem haldinn er fyrir hópinn og svo förum við upp á æfingasvæðið til að slá nokkrum boltum. Ég er alls ekki frískur og næ varla að klára 30 kúlur. Mamma er í sólbaði og Hjörtur Björn sefur lengi á svölunum hjá henni. Ég er slappur þegar ég kem inn á herbergi gubba og sofna svo í rúmlega 4 klst. enda var ég með 39 stiga hita. Mamma hefur það mjög gott og fer í Spa-ið hérna og í nudd. Allskonar laugar, með nuddi, gufur og sturtur og svo mjög gott nudd. Rosa flott aðstaða hérna. Í herberginu okkar er svo líka nuddbaðkar sem mamma og Hjörtur Björn prufa í kvöld og gefa góða einkunn. Ég missi af matnum þar sem ég sef. Fæ lánaða nýja leiki í psp tölvuna hjá Bjössa vini pabba (núna vinur minn). Vakna um 10 leytið og vaki fram á nótt. Það er alltaf glatað að vera veikur en sérstaklega ömurlegt þegar maður er í útlöndum.
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 637
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Myndaalbúm
Spurt er
Af mbl.is
Innlent
- Allt að 13 stiga hiti á sumardaginn fyrsta
- Við erum bara hálflömuð
- Ásthildur Lóa vill fá 174,9 milljónir fyrir húsið
- Norðurgarðurinn endurbyggður
- Halla forseti mun setja Stóra plokkdaginn
- Maðurinn laus úr haldi: Konan með meðvitund
- Íbúðir leyfðar við Austurvöll?
- Konan með höfuðáverka: Einn handtekinn
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.